14.3.2012 | 14:43
Misrétti í reglunum.
"1. Landsbankinn er vinnustaður þar sem karlar og konur eiga jafna möguleika til starfa og stjórnarsetu.
2. Landsbankinn stefnir að jöfnu hlutfalli kynja meðal starfsmanna...."
Liður 2 felur í sér misrétti.
Sé fólk meti á eigin verðleikum þýðir það að ekki er hægt að stefna að ákveðnu hlutfalli kynjanna.
Liðir 1 og 2 stangast á.
|
Ný jafnréttisstefna hjá Landsbankanum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
20.12.2011 | 10:14
Konur með 3,8% hærri laun er karlmenn
Samkvæmt frétt RÚV eru konur með töluvert hærri meðallaun en karlmenn.
http://www.ruv.is/frett/svona-eru-medal-jon-og-gunna
Jón: 374.000 kr. á mán/ 44 klst viku => 2125 kr/klst.
Gunna: 309.000 kr. á mán / 35 klst viku => 2207 kr/klst.
=>3,8 % hærri laun hjá konum.
Ætli femínistarnir viti af þessu?
16.11.2011 | 16:21
Áskorun
Skora á Helgi Hjörvar að senda kvörtun til framleiðanda símans að íslenskt talviðmót vanti í símann.
Eða að hann læri ensku eða annað tungumál sem síminn styður.
Svona verkefni verða að bíða betri tíma.
|
Vélræn enska í ræðustóli Alþingis |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
2.11.2011 | 09:51
Alþingismenn vinni vinnuna sína
Það finnst mér furðulegt að alþingismenn vilji reka embættismenn fyrir a framfylgja lögum sem samþykkt voru samþykkt af þeim sjálfum.
Nær væri að hætta að skrifa blindandi undir lög sem koma hingað sökum EES samningsins.
Alþingismenn ættu að vinna vinnuna sína en ekki ráðast á þá sem framfylgja vitleysunni þeirra.
|
Krafðist þess að yfirmenn yrðu reknir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.9.2011 | 15:36
Stjóranarskrárbrot og hálfvitaskapur
|
Landsbankinn gerir samning við lánatryggingasjóð kvenna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
23.9.2011 | 12:29
Stjórnarskrárbrot
Þetta er eins augljóst stjórnarskrárbrot og getur orðið.
Ég er sjálfur ekki á höttunum eftir lánum eða styrkjum til að koma viðskiptahugmynd af stað en ég skora á alla karlmenn sem eru að leita að svona styrkjum að sækja um og láta neita sér - til þess að getað kært þetta til dómstóla.
Ef skoðað er skjalið sem vísað er í frá fréttinni stendur í því "Ennfremur hafa rannsóknir sýnt að konur eru síður tilbúnar að veðsetja eignir sínar en karlar og hefur það oft staðið
verkefnum kvenna fyrir þrifum." Þetta hljóta að vera lélegustu rök allra tíma. Það er ekki eins og karlmenn sækist í að veðsetja eignir sína, en gera það vegna þess að þeir hafa engan annan kost. Sá sem tekur áhættuna á að fá að njóta gróðans ef einhver verður því hann verður að taka tapið. Þetta minnir óneitanlega á "einkavæðing gróðans en þjóðnýting skulda" - Það er nákvæmlega sem þetta er. Það er einhver tilbúinn að hirða gróðann en ekki að taka áhættuna.
Ég á mjög erfitt með að skilja hvernig konur líða það að þær séu flokkaðar sem aumingjar eða börn sem geta ekki gert hlutina sjálfar.
ps. hvað varð um "Lánatryggingasjóðs kvenna" fór hann á hausinn? Af hverju þurfti að endurreisa hann. Voru þessi verkefni sem fjárfest var í ekki arðbær?
|
Sérstakur sjóður fyrir konur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.9.2011 | 12:17
Samkeppniseftirlitið gerði í brækurnar
Þessi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins er algerlega óskiljanleg. Á engan hátt var þetta neytendum til bóta. Þetta vita allir þeir sem kaupa þessar vörur í stórmörkuðum.
Nú sér maður ekki fljótlega hvað hver pakkning kostar heldur þarf maður að reikna það út eða finna skanna. Ég held að ég hafi aðstoðað einhvern við notkun á þessum skönnum í hvert einasta skipti sem ég fer að versla. Venjulega er það eldra fólk sem lendir í vandræðum með þetta.
Það verður bara að bakka með þessa ákvörðun því að hún hefur bara gert það að verkum að fólk er ruglað í rýminu og enn verr sett í því að gera skynsamleg kaup.
Ef það á að halda sér við þessa ákvörðun þarf að skikka búðir til að merkja hverja einustu pakkningu - sem mun náttúrulega kosta búðirnar meiri vinnu og hækka verðið á vörunni.
|
Vankantar á notkun verðskanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
31.8.2011 | 14:06
Góð ráð úr fortíðinni
Hvet fólk til að lesa eftirfarandi: http://is.wikisource.org/wiki/Heimskringla/%C3%93lafs_saga_helga/125
Þótt aðstæður nú séu vissulega ekki þær sömu og í þessari sögu er samt hægt að læra af þessu svari Einars.
Það skiptir ekki máli hversu góður og heiðarlegur maður Huang Nubo er ef við vitum ekki hvað tekur við af honum.
Það þarf að skoða vandlega mál sem snúa að landareignum útlendinga hér á landi. Skyldi það vera tilviljun að í mörgum löndum gilda sérlega strangar reglur um eignir útlendinga. Til dæmis í Tælandi og Danmörku (að mér skilst).
|
Huang: Viðskipti ekki pólitík |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.8.2011 | 11:37
Harpa fyrir alla landsmenn
Ekki að það komi á óvart þá hefur fólk í kringum Hörpu talað af sér. Í réttlætingu fyrir þessu hús-skrýmsli var því statt og stöðugt haldið fram að þarna væri komið hús sem myndi sinna öllum landsmönnum og allri tegund. Þeir sem vildi vita gerðu sér hins vegar grein fyrir því að þarna var verið að reisa hús fyrir elítuna og "æðri tónlist". Í viðtali sem Steinunn Birnar Ragnarsdóttir veitti Fréttatímanum og birstist í blaðinu 26.8.2011 (http://www.frettatiminn.is/frettir/hryntonlistarmenn_i_hart_vid_horpu/) kemur greinilega fram að það hefur aldrei staðið að hleypa almúganum með sína tónlist inn í húsið. Ég vísa þá í seinustu málsgreinviðtalsins: "Steinunn Birna segir að ýmsir hafi óraunhæfar væntingar til hússins. „Við verðum að horfa til þeirrar staðreyndar að þetta er einstakt hús í íslenskum aðstæðum; þarna eru tvær íslenskar menningarstofnanir komnar inn með sína starfsemi, þarna eru kjöraðstæður fyrir starfsemi Óperunnar og Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hryntónlistarmenn eiga annarra kosta völ. Harpan er hrein viðbót fyrir þá.“
Jakob Bjarnar Grétarsson"
Það hafið þið það. Við almúga pakkið getum bara verið með okkar menningu annars staðar - enda er fólk tilbúið að borga fyrir hana fullu verði.
19.8.2011 | 09:44
"Maze"
Smá besservissering. Það er "mace" en ekki "maze"
Mace er ekki það sama og piparúði þó það sé notað eins...
http://en.wikipedia.org/wiki/Mace_%28spray%29
http://en.wikipedia.org/wiki/Pepper_spray
|
Gengu um og sprautuðu piparúða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Agalega fínt blog
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 5177
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


hvala
svanurmd
